þriðjudagur, 6. febrúar 2007

mánudagur, 29. janúar 2007

Æi nei, ekki Alcoa!

Í Mogga í dag kemur fram að á lista yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims er m.a. Alcoa. Skoðuð eru 1800 stærstu fyrirtæki heims. Til að komast á þennan lista þurfa fyrirtækin að sýna framúrskarandi árangur, ábyrga umhverfis- og samfélagsstefnu og hafa víðtæk efnahagsleg áhrif.

Í kvöld og næstu daga munu íbúar Draumalandsins vakna upp við þennan vonda raunveruleika og taka til við að útlista það að ekkert sé að marka þennan lista. Rangir aðilar leggi mat á fyrirtækin, þeir séu hlutdrægir, hafi ranga sýn á umhverfismál og þannig áfram, upp og niður þann útskýringaskala sem við höfum heyrt undanfarin misseri.

Eigum við að veðja að svona fari?

Ég er viss um að leikurinn við Dani á morgun verður innihaldsríkari, hvernig sem hann fer.

Áfram Haukar!

sunnudagur, 28. janúar 2007

Græni galdrakarlinn

Fyrir skömmu var ég að þvælast um á netinu og lenti inná bloggsíðu Kristjáns Hreinssonar, skálds . Að sjálfsögðu er skáldið á móti Kárahnjúkavirkjun og álveri á Reyðarfirði, hvað annað. Það sem ég vissi ekki að auk þess að vera skáld, er Kristján líka galdarkarl. Hann var á móti álversframkvæmdum hér fyrir austan vegna þess að hann er með miklu betri lausn á þeim vandamálum sem hér var verið að glíma við. Hér er lausn skáldsins og galdramannsins Kristjáns Hreinssonar, tekin orðrétt upp af bloggsíðu hans:

“Ég var spurður að því um daginn, hvernig ég hefði farið að, ef ég hefði ætlað að skapa 400 störf fyrir fólkið á Reyðarfirði, í stað þeirra 400 starfa sem stóriðjan skapar þar í plássi. Ég svaraði og sagði að ég hefði skapað 400 smáfyrirtæki.
Sá sem spurði brosti, hváði svo og spurði aftur: -En Kristján minn, hvernig ætlarðu að láta svoleiðis fyrirtæki vaxa og dafna?
Ég svaraði og sagði: -Ef hver og einn af þeim 400 sem stofna smáfyrirtæki nær að ráða til sín einn mann, þá er búið að tvöfalda stærð fyrirtækjanna. Og það sem meira er, mín 400 fyrirtæki hefðu ekki þurft neina helv... Kárahnjúkavirkjun. Mín 400 fyrirtæki hefðu skilað þjóðinni raunverulegum arði.”

Hann sóttist eftir 2. sæti á framboðsta Vinstri grænna og ætlaði sér að verða þingmaður. Ekki er nú vanþörf á að fá svona galdramenn á þing. Hann fór í prófkjör en fékk ekki brautargengi. Þeir kunna greinilega ekki gott að meta þessir Vinstri grænu. Eru þetta ef til vill bara draumórar? Draumórar sem ganga eingöngu upp í Draumalandinu þar sem allir íbúarnir eru sofandi. Hópurinn sem Andri, Ómar og Vigdís teymdu niður Laugaveginn hefur trúlega verið milli svefns og vöku.

þriðjudagur, 23. janúar 2007

Þreyttur í hægri hendi.

Það er ýmislegt sem hefur komið upp í þjóðlífinu undanfarna daga og vikur. Sumt hefur skemmt manni og annað ekki, eins og við er að búast. Hæst ber að sjálfsögðu frammistöðu landsliðsins í handbolta. Þeim tókst að renna yfir allan tilfinningaskala stuðningsmanna sinna í þeim þremur leikjum sem lokið er. Fyrst er moðað á miðjunni og allt skv. bókinni, Ástralir rassskelltir fyrirhafnarlaust. Næst spila þeir eins og FH-ingar og eru sjálfir rassskelltir af hressu liði Úkraníu. Í gær koma svo upp Haukataktarnir. Evrópumeistararnir sáu aldrei til sólar og voru gersamlega yfirspilaðir í einum besta leik landsliðsins. Fjári var nú annars gaman að horfa á þennan leik. Við félagarnir vorum orðnir, hásir, rauðir í lófum og komnir með þreytu í hægri hendi af linnulausum bjórdósalyftingum. Takk fyrir skemmtunina félagar!

Brandari janúar var þegar draumaskáldið Andri Snær Magnason tók við “Frelsisverðlaunum Sambands ungra Sjálfstæðismanna”. Mér var skemmt, lengi.

Aulahrollur janúar var þegar Bubbi, fyrrverandi baráttumaður farandverkamanna skemmti í einu af pissukeppnispartýum milljarðamæringanna, sem íhaldið og framsókn hafa klónað undanfarin ár, eru að halda þessa dagana. Að vísu var veislan haldin í frystiklefa, þannig að Bubbi hefur trúlega fundið einhverja tengingu. Eða þannig.

Depurð vikunnar helltist yfir mann þegar ljóst varð að dæmdi lögbrjóturinn og siðblindi hrokagikkurinn úr Vestmannaeyjum er á leiðinni á Alþingi Íslendinga til að setja þjóðinni lög til að fara eftir. Fólk er fífl, er það ekki?

mánudagur, 22. janúar 2007

JESSSSSS!!!

Frakkar lágu !! Áfram HAUKAR !

Hvað er að?

Hvernig má það vera að dæmdur drullusokkur sem framið hefur þann glæp sem hrottalegastur er, að misnota börn kynferðislega, virðist fara sjálfkrafa uppá færiband reynslulausnar þegar hann vantar 7 mánuði uppá að hafa afplánað 2/3 af dómi sínum? Þetta gerist þrátt fyrir aðvaranir í sálfræðimati um að hrottinn sé haldinn barnagirnd á háu stigi. Leið þessara “manna” til að nálgast börn hefur á síðustu árum, í síauknum mæli legið í gegnum tölvur og netið. Umræddur perri fór til dvalar hjá Vernd. Þar er reynt að aðlaga fanga við hið daglega líf. Ja, það tókst að aðlaga þennan náunga svo um munaði!! Í húsakynnum Verndar var hann með tvær tölvur og væntanlega aðgang að netinu. Það var gerð “rassía” hjá honum, tölvubúnaður gerður upptækur og hann rannsakaður. Hvað fannst í tölvunum? Upplýsingar um garðyrkju, bútasaum, frímerkjasöfnun og línudans? Nei, auðvitað var hann búinn að koma sér upp myndarlegu safni barnakláms! Hvað annað? Á daginn stundaði hann launavinnu. Hvar skyldi hann nú hafa unnið? Við stöðumælavörslu eða blaðaútburð? Nei, hann vann hjá tölvufyrirtæki!!! Þetta er ekki alveg í lagi!

Ég legg til að Byrgið verði opnað aftur. Mannheld girðing reist umhverfis húsakostinn. Einstefnuhlið við innganginn. Allir dæmdir barnaperrar verði sendir þangað og Gummi ráðinn aftur. Þar hæfir kjaftur skel.

Í alvöru: Hættið að taka á þessum mönnum með silkihönskum. Það eru til olnbogaháir, þykkir gúmmíhanskar í öllum betri Kaupfélögum.
eXTReMe Tracker