þriðjudagur, 23. janúar 2007

Þreyttur í hægri hendi.

Það er ýmislegt sem hefur komið upp í þjóðlífinu undanfarna daga og vikur. Sumt hefur skemmt manni og annað ekki, eins og við er að búast. Hæst ber að sjálfsögðu frammistöðu landsliðsins í handbolta. Þeim tókst að renna yfir allan tilfinningaskala stuðningsmanna sinna í þeim þremur leikjum sem lokið er. Fyrst er moðað á miðjunni og allt skv. bókinni, Ástralir rassskelltir fyrirhafnarlaust. Næst spila þeir eins og FH-ingar og eru sjálfir rassskelltir af hressu liði Úkraníu. Í gær koma svo upp Haukataktarnir. Evrópumeistararnir sáu aldrei til sólar og voru gersamlega yfirspilaðir í einum besta leik landsliðsins. Fjári var nú annars gaman að horfa á þennan leik. Við félagarnir vorum orðnir, hásir, rauðir í lófum og komnir með þreytu í hægri hendi af linnulausum bjórdósalyftingum. Takk fyrir skemmtunina félagar!

Brandari janúar var þegar draumaskáldið Andri Snær Magnason tók við “Frelsisverðlaunum Sambands ungra Sjálfstæðismanna”. Mér var skemmt, lengi.

Aulahrollur janúar var þegar Bubbi, fyrrverandi baráttumaður farandverkamanna skemmti í einu af pissukeppnispartýum milljarðamæringanna, sem íhaldið og framsókn hafa klónað undanfarin ár, eru að halda þessa dagana. Að vísu var veislan haldin í frystiklefa, þannig að Bubbi hefur trúlega fundið einhverja tengingu. Eða þannig.

Depurð vikunnar helltist yfir mann þegar ljóst varð að dæmdi lögbrjóturinn og siðblindi hrokagikkurinn úr Vestmannaeyjum er á leiðinni á Alþingi Íslendinga til að setja þjóðinni lög til að fara eftir. Fólk er fífl, er það ekki?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað meinarðu með Bubba ? Heldurðu að það hafi ekki verið sannfærandi að hlusta á "Stál og hnífur" í frystigeymslunni ?

eXTReMe Tracker